Sjálfbærni fjárfestinga

Starfsemi Tryggingavernd ehf. sem „vátryggingamiðlari“ og „fjármálaráðgjafi“ bundin af
lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi
fyrir sjálfbærar fjárfestingar, skv. skilgreiningu í þeim lögum.

Tryggingavernd ehf. hefur þá stefnu um sjálfbærni að kanna vilja viðskiptavina sinna til
sjálfbærni fjárfestinga sinna og veita þeim upplýsingar um að hvaða marki þær
vörur sem félagið miðlar, uppfylla kröfur þeirra um sjálfbærni. Þessi könnun á
sér stað í lögbundnu mati Tryggingavernd ehf. á hæfi viðskiptavina sinna til
fjárfestinga og tilhlýðnileika á þeim fjárfestingarvörum sem félagið býður. Í
framhaldi af þeirri könnun eru viðskiptavinum veittar upplýsingar hvaða vörur
þeim standa til boða sem uppfylla markmið þeirra um sjálfbærni. Ef engin vara
uppfyllir markmið viðskiptavina um sjálfbærni er viðskiptavinum gerð grein
fyrir því.

Þau líftryggingafélög sem Tryggingavernd ehf. miðlar viðskiptum til eru öll bundin
sömu löggjöf, þ.e. reglugerð ESB nr. 2019/2088 og ber að birta stefnur sínar um
sjálfbærni í þeim fjárfestingarvörum sem þau bjóða. Hér að neðan eru hlekkir á
stefnur um sjálfbærni í öllum þeim mismunandi vörum sem Tryggingavernd ehf.
miðlar fyrir hönd þeirra félaga. Í þessum stefnum kemur fram hvort, og að hvaða
marki vörurnar samræmast sjónarmiðum um sjálfbærni, hvernig fylgst er með því
og hvaða áhrif sjálfbærnistefnan getur haft áhrif á ávöxtun vörunnar.

Upplýsingaskjal um sjálfbærnistefnu Allianz Target4Life

Sjálfbærnistefna Allianz Target 4 Life

Upplýsingaskjöl um sjálfbærni í fjárfestingum VPV

VPV Future Plan – Lykilupplýsingaskjal

VPV Future Plan – Sýnishorn af útreikningum

VPV Future Pension – Lykilupplýsingaskjal

VPV Future Pension – Sýnishorn af útreikningum

VPV Future Pension Classic – Lykilupplýsingaskjal

VPV Future Pension Classic – Sýnishorn af útreikningum