VPV Future Pension Classic
VPV Future Pension Classic er lífeyristrygging sem hægt er að ráðstafa 3,5% af skyldulífeyri
Fjárfestir í traustum öryggiseignum VPV
Tilgreinda séreign VPV Future Pension Classic er hægt að byrja að taka út við 62 ára aldur. Hægt er að dreifa greiðslum til 67 ára eða leysa hana alla út við 67 ára aldur í eingreiðslu. VPV býður líka upp á að tilgreinda séreignin í VPV Future Pension verði greidd semævilangur lífeyrir þegar kemur að 67 ára aldri.
Lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð 15,5% hjá öllum. Lífeyrissjóðum er heimilt að bjóða sjóðfélögum að ráðstafa allt að 3,5% af lágmarksiðgjaldi í tilgreinda séreign. Þá fer 3,5% í tilgreinda séreign sem er einkaeign sjóðfélaga og 12% í samtryggingu.
Tilgreind séreign
Tilgreind séreign er séreignarsparnaður fyrir þá sem vilja aukinn sveigjanleika við starfslok en hægt er að byrja að leysa sparnaðinn út við 62 ára aldur. Tilgreind séreign er óaðfarahæfur, erfanlegur lífeyrissparnaður þar sem ekki þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af ávöxtun.
Skilmálar og upplýsingaskjöl
Samningsgögn og lykilupplýsingar VPV Future Plan Plus
Lykilupplýsingaskjöl VPV Future Plan Plus
Lykilupplýsingaskjöl
Algengar spurningar og svör
Hver er helsti munurinn á Classic og öðrum VPV tryggingum?
Classic býður upp á stöðugri ávöxtun með skýrari skilmálum og minni sveiflur.
Er tryggingin einingatengd?
Já, en með áherslu á stöðuga og örugga ávöxtun
Er þetta trygging með lífeyri eða eingreiðslu?
Hægt að dreifa greiðslum frá 62 ára til 67 ára, taka út eingreiðslu eða frá greidda sem ævilangan lífeyri frá 67 ára aldri
Er sparnaðurinn laus til útgreiðslu?
Já, frá 62 ára aldri eða við örorku, samkvæmt skilmálum.
Er hægt að breyta ávöxtunarleiðum?
Nei, ávöxtunin er fastmótuð og hentar þeim sem vilja stöðugleika.